Námskeið í netöryggi

Netöryggi í daglegu lífi almennings – Cybersecurity

Upplýsingaöryggi er verkefni sem endar aldrei.
Tölvur geta verið með hörðustu öryggisstillingum sem völ er á – jafnvel þannig að engin leið sé til beinna innbrota frá netinu inná upplýsingaeigur og tölvur. Staðreyndin er hins vegar sú að algengasta og léttasta leið tölvuþrjóta til innbrota inná tölvukerfi er í gegnum okkur, mannfólkið. Háar upphæðir eru sviknar af fórnarlömbum netsvika á Íslandi á hverju ári, og eru netsvik bara að verða algengari og þróaðri, þökk sé gervigreindinni meðal annars.

Í þessu námskeiði í netöryggi fyrir almenning verður farið yfir örugg vinnubrögð í notkun tölva og upplýsingaeigna. Markmiðið er að bæta kunnáttu þátttakanda þegar kemur að notkun tölva og upplýsingakerfa, og lágmarka þannig áhættu á tölvuinnbrotum og öryggisatvikum sem geta átt sér stað vegna kunnáttuleysis og mistaka.

Eftir fyrirlesturinn hafa þátttakendur öðlast betri þekkingu til að verjast netsvikum og árásum.

Helstu atriði sem farið verður yfir:

  • Notkun tölvupósts og áhættur sem þarf að þekkja í tölvupóstsendingum
  • Örugg lykilorð og meðferð þeirra í vöfrum og hugbúnaði almennt
  • Hvernig á að þekkja bragðvísi (e. social engineering), netveiðar (e. phishing) og hvernig á að bregðast við slíku
  • Gervigreindarsvik, þekkja rauðu flöggin
  • Tækin þín og gögn, öruggt umgengi og stillingar
  • Viðbragðsáætlun ef grunur vaknar um svik eða netárás

Notandinn er of oft veikasti hlekkurinn í upplýsingaöryggi. Byggðu upp þína öryggisvitund núna.

Hér getur þú bókað tíma. Fyrirlestrar eru á Laugardögum kl 10:00-11:30 hjá Bithex ehf, Skeifunni 19, Reykjavík og kosta kr. 14.900 (með VSK) á mann.


Loading…
Powered by Booking Calendar